Aðalfundur Ísfélags hf. 2024 - Frambjóðendur til stjórnar, dagskrá og endanlegar tillögur.

Aðalfundur Ísfélags hf. 2024 - Frambjóðendur til stjórnar, dagskrá og endanlegar tillögur.

GlobeNewswire

Published

Fundurinn er haldinn rafrænt og á Tangagötu 1 Vestmannaeyjum þann 17.  apríl 2024 kl. 16:00.

Meðfylgjandi eru upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar félagsins sem eru í kjöri á aðalfundinum 17. apríl 2024. Framboðsfrestur er útrunninn. Samkvæmt samþykktum félagsins kýs aðalfundur allt að sjö menn í stjórn. Fimm einstaklingar eru í kjöri til aðalstjórnar og er því sjálfkjörið í stjórn.

Í kjöri til stjórnar eru:

· Einar Sigurðsson
· Guðbjörg Matthíasdóttir
· Gunnar Sigvaldason
· Steinunn H. Marteinsdóttir
· Sigríður Vala Halldórsdóttir

Engar breytingar eru á fyrirliggjandi tillögum fyrir fundinn eða áður birtri dagskrá. Tillögur eru meðfylgjandi.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, þurfa að skrá sig á

https://www.lumiconnect.com/meeting/isfelagagm2024

eigi síðar en kl. 16:00 þann 16. apríl 2024, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á. Mikilvægt er að skrá sig á fundinn þó mætt sé á fundinn á Tangagötu 1, þar sem atkvæðagreiðsla fundarins verður í kerfinu.

Allar nánari upplýsingar um hluthafafundinn má finna á vefsíðu félagsins https://isfelag.is/fjarfestar/

*Attachments*

· Ísfélag - lokatillögur fyrir aðalfund
· Framboð við kjör stjórnar á aðalfundi Ísfélags hf_2024

Full Article